Ađalvalmynd

Prófíll

Tenglar

Gagnasafn

Međ kistuna fulla af matValgerđur Júlíusdóttir

Jammsí

Við fórum upp á Flúðir um síðustu helgi til að úrbeina eitt stk naut með mö og pa og Einari frænda og co. Við vorum á fullu allt föstudagskvöldið og svo allan laugardaginn að þessu, enda ansi stór tuddi sem við fengum. Svo var öllu vagúmpakkað að þessu sinni og það tók talsvert meiri tíma heldur en að setja bara í venjulega poka. En gæðin haldast betur í staðin;) Sunnudagurinn var svo bara tekinn í slökun í sveitinni og vorum við alveg fram yfir kvöldmat í þetta skiptið, brunuðum svo heim með gömlu kistuna þeirra gömluWink þau gömlu voru búin að endurnýja, og ekki nóg með það, heldur var kistan full af kjöti, eða allavega hálf fullLaughing

Framundan hjá mér er svo bara meiri verkefni og ritgerðir í fleirtöluUndecided og svo bara fyrsta prófið 28. nóv. Þannig að ég segi bara.. sjáumst eftir prófWink

Jesss....Obama vannValgerđur Júlíusdóttir

Djö hvað ég er ánægð með kostningarnar í nótt, minn maður vann eða rústaði þessu eins og sagt er á góðri íslenskuLaughing Semsé, ég hafði rétt fyrir mér síðastliðinn vetur þegar ég setti inn könnunina um hver yrði næsti forseti Bandaríkjanna.

Svo var ég að komast að því að ég verð komin í jólafrí 9. des ...Jeijjj... ekkert smá ánægð með það. Þá get ég loksins litið upp úr bókunum og farið að gera ýmislegt í húsinu sem ég ætlaði að vera löngu búin að, en svona er þetta þegar maður er að drukkna í verkefnum. Talandi um verkefni, best að reyna að klóra eitthvað aðeins meira í þau áður en Júlía kemur heim.

Ble ble

Árshátíđ á HiltonValgerđur Júlíusdóttir

Í gær fórum við Jón á árshátíð VST-Rafteikningar sem var haldin á hótel Hilton í Rvk. Júlía Birna var í pössun hjá Jóhanni og stelpunum á meðan sem henni fannst æðislegt. Hún lítur svo upp til tvíburranna sem eru 13 ára og þær eru líka rosalega duglegar að leika við hana. En við semsagt fengum far með vinnufélaga Jóns og konunni hans. Hátíðin byrjaði með fordrykk og smáréttahlaðborði sem var svo útilátið að það var á við flott kokteilboð. Eftir fordrykk var svo fólki boðið að koma inn í aðal salinn og fá sér sæti og við tók 3ja rétta máltíð með víni og öllu. Við fengum ægilega þjóðlegann forrétt sem var kaldur saltfiskur, humar, beikon á rófustöppubeði og gufusoðið egg og þurrkað rúgbrauð með (frekar skrítinn forréttur). Í aðalrétt voru svo nautalundir með sveppatartar og kartöflustöppu (hálfgert lúxus stroganoff;) sem var samt alveg rosalega gott og í eftirrétt var svo svona heit súkkulaðimús með sykurpúða og jarðarberjum ofan á, súkkulaðibitakaka og ís. Síðan var rauðvín og hvítvín eins og hver gat í sig látið og gos fyrir þá sem vildu og Grand marinere, koníak eða Beilís með kaffinu á eftir. Inn á milli rétta voru svo skemmtiatriði og veislustjórar/skemmtikraftar kvöldsins voru leikarapar (sem ég man ekki hvað heita) klædd upp sem prins og prinsessa. Þemað var söngleikjaþema og skemmtiatriðin því í þeim stíl. Buffið spilaði svo fyrir dansi og þeir voru geggjaðir, ég dansaði við alla sem nenntu að dansa og söng hástöfum allt ballið eða þar til Buffið hætti og við vorum á endanum hálfpartin rekin út af staðnum. En kvöldið var bara virkilega skemmtilegt, ég hef ekki dansað svona mikið síðan ég og Gulla fórum á Papaball fyrir löngu;)

Svo varðandi "leindarmálið" þá eru Svenni bró og familí að koma heim um jólin, alveg óvænt. Ég hlakka ekkert smá til, ég bjóst ekki við að sjá þau næstu mánuðina, en svo eru þau bara að koma á klakann í næsta mánuði;)

HiltonValgerđur Júlíusdóttir

Jæja, viðtölin ætla að reddast. Ég er semsagt búin að taka viðtal við hana ömmu mína og það gekk bara vel og svo tek ég viðtal við hana Siggu á eftir. Svo á bara eftir að koma þessu inn í tölvu og pikka svo inn allt sem sagt er, orð fyrir orð, í word skjal og skrifa svo viðtölin á disk. Skemmtilegt verkefni samt, allavega miðað við þessar hefðbundnu ritgerðir alltaf hreint.

Á laugardaginn er svo árshátíð hjá fyrirtækinu hans Jóns og það verður haldið á Hilton hótelinu í Reykjavíkinni og í tilefni kreppunnar þá hefur fyrirtækið ákveðið að bjóða öllum starfsmönnum og mökum frítt á allt heila klabbiðWink Ekki slæmt það. Þannig að maður verður að fara að sjæna sig aðeins til fyrir þetta, ég litaði á mér augabrúnirnar í gær og svo verður maður að skella smá brúnkukremi á sig svo það sjáist ekki hreinlega í gegnum mannLaughing maður er orðinn svo glær af allri innilegunni í þessum blessaða lærdómi.

Ég var líka að fá óvæntar fréttir í gærkvöldi en veit ekki hvort það er orðið opinbert þannig að ég segi ykkur það bara næst þegar ég blogga Wink

Ble í bili

Hjálp!!Valgerđur Júlíusdóttir

Mig vantar smá aðstoð við verkefni í skólanum mínum.
Við eigum semsagt að taka tvö 15 mín viðtöl við einn af eldri kynslóðinni (eldri en 35) og svo einn af yngri kynslóðinni (yngri en 35). Viðtalið á að snúast um annaðhvort hátíðir, leiki eða skemmtanir og ég hafði hugsað mér að taka jólahátíðina fyrir og fjalla um hvernig jólin voru í æsku viðmælanda og svo hvernig þau eru í dag.
Viðtalið verður tekið upp og síðan varðveitt á Þjóðháttasafni Íslands, en verður að sjálfsögðu ekki til sýnis, heldur bara varðveitt sem heimild.
Ég er búin að fá viðmælanda fyrir eldri kynslóðina en vantar fyrir yngri kynslóðina. Þess vegna er ég að kalla eftir ykkar aðstoð kæru vinir og vandamennLaughing

Endilega hafið samband við mig ef þið hafið áhugaLaughing

ÚtflutningurValgerđur Júlíusdóttir

Jæja kæru landsmenn, til að "bjarga" íslensku krónunni þurfum við að leggjast á eitt og fara að framleiða villt og galið og selja úr landi. Nú verðum við að taka upp prjónana og gera líkt og forfeður okkar, prjóna sokka og vettlinga og senda úr landi til að fá gjaldeyri heim. Koma svo, einn tveir og prjónaWink

HamfarirValgerđur Júlíusdóttir

Þetta ár er búið að vera alveg rosalega "viðburðaríkt" í Íslandssögunni, ekki nóg með að það hafi komið stærðarinnar jarðskjálfti í vor, heldur eru búnir að vera stöðugir jarðskjálftar á fjármálamarkaði allt árið og "sá stóri" kom fyrir ekki svo löngu. Núna er hins vegar verið að spá því að Hekla fari að gjósa hvað úr hverju, þar sem þrýstingurinn undir henni er orðinn meiri en fyrir gosið árið 2000: http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/23/hekla_getur_gosid_hvenaer_sem_er/

Hvar endar þetta eiginlega? Er eyjan að sökkva í hafið???

Endilega kommentið, líka þið laumupúkar sem kíkið bara og kvittið aldreiWink

Loksins myndirValgerđur Júlíusdóttir

Ég setti inn nokkrar myndir í albúmið "framkvæmdir" og svo bjó ég til nýtt albúm með myndum eftir framkvæmdirLaughing.

"Já, ekki ber á öđru, hann er farinn."Valgerđur Júlíusdóttir

Ekki víst að allir muni eftir þessari setningu úr Útlaganum og Gísla Sögu Súrssonar, sem ég er einmitt að gera verkefni um þessa dagana.

Já, Adam var ekki lengi í paradís. Nýji heimilismeðlimurinn er semsagt farinn aftur eftir að hafa verið hjá okkur í smá "reynslu". Tíkin semsagt "umbreyttist" hjá okkur og tók "skyndilega" á því að gelta í tíma og ótíma (semsagt meira og minna alla nóttina) sem samkvæmt eigenda gelti aldrei hjá henni. En greiið var líka sí vælandi (sem ég get reyndar skilið þar sem hún saknar jú fyrrum eigenda) svo át hún eitt stk málningarrúllu já og nagaði óhreinatau körfuna okkar af öllum hlutum, svo svona til að setja punktinn yfir i-ið þá hef ég nú barasta aldei séð annað eins hárlos á einum hundi, gólfin voru bókstaflega svört við það eitt að hundurinn gekk þar um sem fyrrum eigandi útskýrði sem stress (ég meina halló, hundurinn á ekki að missa feldinn þó hann sé stressaður). En svona er þetta bara, annars var hún voðalega ljúf og góð greiið, en hefði bara þurft að komast í sveit og fá að vera frjáls og helst með öðrum hundum. Enda hafði hún verið í sveit í pössun um tíma og þeir hundar sem komast í kynni við sveit einu sinni, vilja helst ekkert annað.

En "sei la ví" (veit ekki hvernig þetta er skrifað) eða svona er lífið. Við reynum kannski við hundamálin seinna, held að við fáum bara hann Gutta hennar tengdó lánaðann í bili;)

Jæja, best að hætta þessu blaðri og koma sér að læra, enda bíða mín tvær 10 bls ritgerðir og tvö verkefni.

Já kannski bara....Valgerđur Júlíusdóttir

...kominn tími á þetta. Það er allavega nóg að frétta síðan síðast.

Látum okkur sjá, byrjum á byrjuninni:

Við erum flutt í nýja húsið eftir mikið kapphlaup við að klára um síðastliðin mánaðarmót. Það var verið að flísaleggja, mála bókstaflega alla veggi tvisvar, setja upp innréttingu og skápa, þrífa glugga og ofna og gólfin og það allt í bland, en þar sem við höfðum fullt af fólki að hjálpa okkur, þá tókst okkur að gera þetta allt á einum og hálfum degi, eða hálfan fimmtudag og einn föstudag. Á laugardeginum fluttum við svo, ásamt því að pakka ofan í kassa á sama tíma, þrífa íbúðina í Ástjörninni hátt og lágt og undirbúa málningarvinnuna þar. Á sunnudeginum var svo sú íbúð máluð eina umferð yfir allt og klárað að þrífa. En þar sem við vorum ekki búin að klára að setja upp klósettin og sturtuna í nýja húsinu gistum við hjá tengdó í eina og hálfa viku á meðan við vorum að klára þetta helsta. Það tók hins vegar talsvert lengri tíma en við bjuggumst við að setja upp 1 stk sturtuklefa, þar sem flísarnar á baðinu eru svo grjótharðar að það eru bara ekki framleiddir borar sem bíta almennilega á þær. Þannig að það er búið að bræða úr ansi mörgum borum í því rými og við erum ekki enn farin að setja upp innréttinguna þar inni, enda hálf kvíðum við fyrir því. En eftir rúma viku dvöl hjá tengdó fluttum við inn og erum svona að koma okkur fyrir í róleg heitunum, einhverjar gardínur komnar og svona, en það vantar svosum alveg einhver gólfefni og svo ég tali nú ekki um hurðirnar, við hentum upp einni gamalli hurð fyrir litla baðherbergið og svo annari fyrir þvottarhúsið og það verður að duga í bili, enda hin argasta kreppa í gangi akkúrat núna.

Skólinn hjá mér gengur ótrúlega vel hjá mér miðað við aðstæður undanfarnar vikur og já, mánuði. En ég fékk barasta 9 fyrir fyrsta verkefni annarinnar og bjóst alls ekki við því. Vona bara að þetta haldi svona áfram.

Svo að lokum ætla ég að kynna fyrir ykkur nýjasta fjölskyldu meðliminn. Já við erum búin að ættleiða 1 árs gamla tík sem heitir Móna. Hún er blanda af labrador og irish setter, kolbikasvört og algjör dúlla. Við sóttum hana í dag, fyrrum eigandi gat ekki haft hana sökum asma. Ég set inn myndir við tækifæri, annars andaðist tölvan mín í vikunni og ég er með lánstölvu, þannig að það gæti orðið einhver bið á myndunum.

Jæja, læt þetta gott heita í bili.

Síđa 1 af 6

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

Könnun

Er kreppa á Íslandi?